Velkomin á heimasíðuna okkar!
Raufarfell er lítið býli undir Eyjafjöllum á Suðurlandi. Á Raufarfelli hefur verið stunduð hrossarækt frá því snemma á 19. öld. Ræktunin byggir á gömlum þekktum stofnum úr sveitinni m.a. hrossum af gamla Núpakotsstofninum. Í seinni tíð hafa hrossin blandast stóðhestum af öðrum svæðum á landinu. Áhersla er lögð á falleg og geðgóð fjölskyldu- og reiðhross.
|